Stuðningsefni fyrir tilfinningalæsis verkefnavinnu.
Tilfinningahjólið
Megintilgangur náms og kennslu í lykilhæfni er að þroska sjálfsvitund og
samskiptahæfni nemenda, gagnrýna hugsun, undirbúa þá fyrir virka þátttöku í
lýðræðissamfélagi og að þeir öðlist getu til að nýta sér styrkleika sína til áframhaldandi
náms og starfsþróunar þegar þar að kemur. Hæfniviðmið í lykilhæfni eru sett fram í
fimm flokkum:
tjáning og miðlun.
skapandi og gagnrýnin hugsun
sjálfstæði og samvinna
nýting miðla og upplýsinga
ábyrgð og mat á eigin námi.
Hæfniviðmiðin eru flokkuð á þennan veg, þó er mikilvægt að horfa á þau sem
samfellda heild. Ef horft er beint sérstaklega að einu hæfniviðmiði þarf að vera meðvitaður um að nám er samfellt ferli og skapandi athöfn fremur en söfnun
afmarkaðrar þekkingar og þjálfun í tiltekinni leikni (Aðalnámskrá grunnskóla, 2024)
Hvernig líður þér í dag?
Innra með okkur eru ólíkar tilfinningar sem við eigum, þær geta komið upp í mismunandi aðstæðum.
Stundum á góðan veg en einnig á neikvæðan eða óþægilegan
veg.
Mikilvægt er að ræða um að engin tilfinning sé röng en mikilvægt sé að
þekkja eigin tilfinningar og af hverju þær komi upp hjá okkur ásamt því hvernig ætlum við að bregðast við?
Tilfinningar bera ýmis heiti, sem dæmi: Samkennd – Spenna –
Öryggi - Skömm – Gleði – Hræðsla – Depurð og reiði.
Plakat: Mildi & væntumþykja
Það er mikilvægt að
geta sýnt sjálfum sér mildi og hlýju ásamt því að senda sjálfum sér þau
skilaboð að maður sjálfur skiptir máli. Oft er mikið að gera en mikilvægt er
að kunna að læra að slaka reglulega á og vera með sjálfum okkur í slökun.
Samkennd er eiginleiki innra með okkur að geta sýnt okkur sjálfum skilning
þegar við höfum upplifað að við séum ekki að standa okkur nógu vel eða
erum jafnvel ekki nógu ánægð með okkur sjálf.