Stuðningsefni

Tilfinningahjólið

Megintilgangur náms og kennslu í lykilhæfni er að þroska sjálfsvitund og samskiptahæfni nemenda, gagnrýna hugsun, undirbúa þá fyrir virka þátttöku í lýðræðissamfélagi og að þeir öðlist getu til að nýta sér styrkleika sína til áframhaldandi náms og starfsþróunar þegar þar að kemur.

Hæfniviðmið í lykilhæfni eru sett fram í fimm flokkum:

  • Tjáning og miðlun

  • Skapandi og gagnrýnin hugsun

  • Sjálfstæði og samvinna

  • Nýting miðla og upplýsinga

  • Ábyrgð og mat á eigin námi


Hæfniviðmiðin eru flokkuð á þennan veg, þó er mikilvægt að horfa á þau sem samfellda heild. Ef horft er sérstaklega á eitt hæfniviðmið þarf að vera meðvitaður um að nám er samfellt ferli og skapandi athöfn fremur en söfnun afmarkaðrar þekkingar og þjálfun í tiltekinni leikni (Aðalnámskrá grunnskóla, 2024).

Veggspjald: Hvernig líður þér í dag?

Innra með okkur eru ólíkar tilfinningar sem við eigum, þær geta komið upp í mismunandi aðstæðum. Stundum á góðan hátt en einnig á neikvæðan eða óþægilegan hátt.

Mikilvægt er að ræða um að engin tilfinning sé röng en mikilvægt sé að þekkja eigin tilfinningar, af hverju þær komi upp hjá okkur ásamt því hvernig ætlum við að bregðast við.


Tilfinningar bera ýmis heiti. Til dæmis: samkennd – spenna – öryggi - skömm – gleði – hræðsla – depurð og reiði.

Veggspjald: Mildi og væntumþykju

Það er mikilvægt að geta sýnt sjálfum sér mildi og hlýju ásamt því að senda sjálfum sér þau skilaboð að maður sjálfur skiptir máli. Oft er mikið að gera en mikilvægt er
að kunna að læra að slaka reglulega á og vera með sjálfum okkur í slökun. Samkennd er eiginleiki innra með okkur að geta sýnt okkur sjálfum skilning þegar við höfum upplifað að við séum ekki að standa okkur nógu vel eða erum jafnvel ekki nógu ánægð með okkur sjálf.

Previous
Previous

Um verkefnið

Next
Next

Fræðilegur grunnur